9.2.2012 | 23:57
Ein bjartsýn!
Hrossin komu á hús fyrstu vikuna í janúar. Því miður hefur það gengið illa að byrja að þjálfa sökum þess að ekki að var hægt að járna fyrr en um mánaðarmótin jan.-feb. En nú þegar hrossin eru komin á járn hef ég ekki haft nægan tíma til að hreyfa þau vegna veðurs, færðar og dálítillar leti (skamm á mig!). En nú fer bjartsýnin á fullt! Þann 19. febrúar verður haldið mót sem kallast Bleika töltmótið, og verður haldið í reiðhöllinni í Víðidal til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Mig dauðlangar að taka þátt og styrkja Krabbameinsfélag Íslands. Bjartsýni mín fellst í því að ná að vinna nóg með Dyninn minn og drífa mig svo með hann á mótið. En það er ekki að ástæðulausu sem ég ætla að láta reyna á þetta. Náin fjölskyldumeðlimur hefur verið að berjast við þennan hræðilega sjúkdóm, svo skítt með stuttan tíma til að þjálfa hrossið upp! Ég mun gera mitt besta til að komast! Dynur frá Efsta-Dal I 

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



keli


